Háværar sprengingar hafa kveðið við í úkraínsku höfuðborginni Kyiv eftir að hermálayfirvöld vöruðu við yfirvofandi eldflaugaárás Rússlandshers. Unnið að hreinsun á bensínstöð sem skemmdist í loftárás Rússlandshers 15. september.EPA / SERGEY DOLZHENKOYfirvöld hvöttu almenning til að leita skjóls hið snarasta. Fréttaritari AFP í borginni kveðst sjálfur hafa heyrt vel á annan tug sprenginga. Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir íbúðabyggingu og skrifstofuhúsnæði hafa skemmst í Dniprovsky-hverfinu þegar brak féll þar til jarðar. Úkraínsk yfirvöld greina jafnframt frá árásum á hafnarborgina Odessu þar sem nokkrar hæðir nítján hæða fjölbýlishúss gereyðilögðust.