Innsetning listakonunnar Steinunnar Þórarinsdóttur, BRYNJUR, var opnuð í Stríðsminjasafni Kænugarðs í Úkraínu í dag. Innsetningin var unnin á árunum 2016-2018 og sýnir miðaldabrynjur úr safneign Metropolitan-safnsins í New York sem skannaðar voru inn með þrívíddartækni og unnir úr þeim skúlptúrar úr áli.Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu, opnaði sýninguna. Hann segir hugmyndina upphaflega hafa komið frá safninu, sem hafði samband við Steinunni og sýndi áhuga á að setja verkin upp þar.„Við notuðum síðan tækifærið hér og gerðum úr þessu stærri viðburð,“ segir Friðrik í kvöldfréttum útvarps. Hann segir að þrír viðburðir hafi í raun verið haldnir í tengslum við opnunina í dag, bæði við Stríðsminjasafnið og undir Móðurlandsstyttunni í Kænugarði. HEITI SÝNINGARINNAR VÍSAR TIL STRÍÐS