Í norrænni goðafræði var það sagt um Kvasi hinn vitra, sem skapaður var úr hráka ása og vana, að enginn spyrði hann þess er hann vissi ekki og var að lokum sagt að hann hefði kafnað úr mannviti. Noregsdeild alþjóðasamtakanna Mensa rær nú á Íslandsmið í leit að gáfumennum og reynir greind áhugasamra víða um land.