Bíll alelda í Kópavogi

Bíll varð alelda við Fífuhvammsveg í Kópavogi í kvöld. Vísir greinir frá.Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eldinn skömmu fyrir klukkan hálf ellefu og var komið á vettvang um hálf ellefu. Einn dælubíll var sendur á vettvang.„Við fáum tilkynningu um bíl og hann er alelda,“ segir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu.Samkvæmt Lárusi barst eldurinn í annan bíl sem var lagt við hliðina á bílnum sem varð alelda.Búið er að ná tökum á eldinum en ekki liggur fyrir hvað olli honum. Lárus segir að um lítið atvik sé að ræða og að íbúar þurfi ekki að hafa áhyggjur af reyk.Myndin er úr safni.RÚV / Ragnar Visage
Bíll alelda í Kópavogi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd