Wolt nýtur mikilla og vaxandi vinsælda á Íslandi. Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt en fyrirtækið hóf starfsemi hér á landi árið 2023. Hluti þeirra safnaðist saman við skrifstofur fyrirtækisins í Ármúla í morgun.Gheorhhe Miha, einn reyndasti bílstjóri fyrirtækisins, segir vinnudaginn oft verða tólf til fjórtán klukkustundir. Dagstekjurnar hafi í fyrra verið á bilinu 35-40 þúsund krónur en séu nú nær 20-25 þúsund krónum.„Áður fengum við að minnsta kosti 1000 krónur fyrir hverja sendingu en nú hefur það lækkað niður í 600 krónur. Af hverju er verið að lækka launin okkar þegar viðskiptavinir borga sama verð og áður? Hvers vegna er verið að refsa okkur? Við þurfum að eiga samtal og fá að vita hvað er í gangi.“