Verkfall flugvirkja gæti kostað Icelandair hundruð milljóna króna á dag í tekjutap og bætur til farþega, samkvæmt greiningu AKKUR. Flugvirkjar Icelandair hafa boðað ótímabundið verkfall sem hefjast á 23. september, náist ekki samningar.Um 15 þúsund farþegar ferðast með Icelandair á hverjum degi um þetta leyti í september, í um 110 flugferðum. Röskun á flugi gæti því haft áhrif á ferðaáætlanir þúsunda ferðamanna og tekjur fyrirtækja víða um land. MILLJARÐATJÓN EF VERKFALL DREGST Á LANGINN Samkvæmt greiningu AKKURs gæti þriggja daga verkfall, þar sem um helmingur flugáætlana félagsins félli niður, kostað Icelandair um 1,1 milljarð króna.Vikuverkfall með helming flugferða felldan niður gæti kostað um 2,7 milljarða króna. Verði algjör stöðvun á flugrekstri í tvær vikur gæti kostnaðurinn num