Andri Snær Magnason hlaut í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti, á degi íslenskrar náttúru. Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem unnið hefur markvert starf á sviði náttúruverndar. Þetta er í sautjánda sinn sem hún er afhent.Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu kemur fram að Andri Snær hafi um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélag.Meðal annars hafi hann beint sjónum að verndun íslenskrar náttúru, jöklum landsins, súrnun sjávar og þeim grundvallarbreytingum sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér.Andri Snær var einnig sæmdur heiðursmerki íslensku fálkaorðunnar 17. júní á þessu ári fyrir skapandi störf í þágu framtíðar. MIÐLAR FLÓKINNA NIÐURSTAÐNA Á AÐG