Köstuðu 40 hvítum rósum í hafið fyrir skipverja Pourquoi Pas?

Þann 15. september 1936 sigldi Pourquoi pas? í sína hinstu ferð.Skipið leitaði skjóls á Faxaflóa í ofsaroki og strandaði við skerið Hnokka, nálægt bænum Straumfirði. 21 lík fundust daginn eftir, meðal annars af skipstjóranum, heimsþekktum landkönnuði að nafni Jean Baptiste CharcotAf 41 skipverja komst aðeins einn lífs af. Kristján Þórólfsson, 18 ára, kom auga á skipverjann Eugene Gonidec sem hékk á landgangi skipsins í sjónum.Barnabarnabarn Charcot, Anne Manipoud-Charcot, var viðstödd minningarathöfn í Straumfirði í dag, þar sem 40 hvítum rósum var kastað í hafið í minningu skipverjanna sem fórust.Dagskránni lýkur í kvöld á Landnámssetrinu í Borgarnesi þar sem Illugi Jökulsson verður með erindi. Málþing um arfleifð Charcots verður haldið í Veröld, húsi Vigdísar, 17. sept.
Köstuðu 40 hvítum rósum í hafið fyrir skipverja Pourquoi Pas?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd