Málið hefur verið eitt umdeildasta dýravelferðarmál landsins síðustu árin, ásamt hvalveiðum. Alþjóðleg dýraverndarsamtök hafa birt myndbönd af starfseminni sem hafa vakið heimsathygli.EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hryssum teljist tilraun á dýrum. Í hryssublóðinu er hormón sem Ísteka notar til að framleiða lyf sem eykur frjósemi og stillir gangmál annarra spendýra, sérstaklega í iðnaðarbúskap.Á Íslandi eru 4000 blóðmerar á 90 bæjum. Úr hverri meri eru teknir allt að 40 lítrar af blóði á hverju ári yfir 8 vikna tímabil.Ísteka byggði málflutning sinn á því að um hefðbundna landbúnaðarstarfsemi væri að ræða og líkti henni við ostagerð eftir umfjöllun Kveiks um blóðmerahald.Ísteka hefur einnig haldið því fram að blóðtakan væri svo væg að hún félli u