Breiðafjarðarferjan Baldur er á leið í slipp í byrjun október. Mikið rask hefur verið á siglingum ferjunnar en hún þurfti að sigla milli lands og Vestmannaeyja í sumar. Bæjarstjórinn í Stykkishólmi, Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, segir að ferðamönnum hafi fækkað sökum vandræða með siglingar.„Þetta er umtalsvert högg sem að bæði rekstraraðilar hér, aðilar í ferðaþjónustu. Bara hafnargjöld og hafnarsjóður verður fyrir höggi vegna tekjutaps sem eru kannski einhverjar milljónir, fjórar milljónir,“ segir Jakob. ÓSKA EFTIR AÐ RÍKIÐ KOMI TIL MÓTS VIÐ TEKJUTAP Sveitarfélögin við Breiðafjörð óskuðu eftir því við innviðaráðherra að ríkið kæmi til móts við þau sökum tekjutapsins. Fjórar milljónir eru um 6% af tekjum hafnarsjóðs í Stykkishólmi.„Innviðaráðherra tók ekki jákvætt í það á fundi