Ferfætt systkini keppa á HM smalahunda

Heimsmeistarakeppni smalahunda í Skotlandi hefst í dag og stendur fram á sunnudag.Keppendurnir frá Íslandi eru Maríus Snær Halldórsson, bóndi á Presthólum í Núpasveit í Öxarfirði, með hundinn Rosa og Elísabet Gunnarsdóttir, bóndi á Ketilsstöðum á Tjörnesi, með tíkina Ásu.Maríus segir að það kosti mikið að taka þátt í heimsmeistaramótinu en að þau Elísabet hafi fengið góða styrki víða að, sem þau eru mjög þakklát fyrir.Áttu von á að þið náið góðum árangri?„Já, já, það held ég. Ég trúi ekki öðru,“ segir Maríus.En geta áhugasamir fylgst einhvers staðar með keppninni?„Já, það er hægt að fara inn á síðu Smalahundafélags Íslands og finna þar út til að geta horft á streymi,“ segir hann.
Ferfætt systkini keppa á HM smalahunda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd