Tæplega fjórir af hverjum tíu Íslendingum telja sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar. Hlutfallið hefur farið hækkandi síðustu ár.Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup.Lúsmý hefur herjað á landann að minnsta kosti frá árinu 2015 og dreift sér um land allt.Hlutfall þeirra sem töldu sig bitna af vargnum árið 2026 er talsvert hærra en sumarið 2019. Nú segjast 39% hafa verið bitin en voru 14% í mælingu Gallup árið 2019.Í sumar sögðust flestir hafa verið bitnir á Suðurlandi, eða 41%. Færri sögðust hafa verið bitnir á höfuðborgarsvæðinu eða Vesturlandi – um tveir af hverjum tíu. Fæstir sögðust hafa verið bitnir á Austurlandi, eða 10%.Rúmur helmingur þeirra sem svöruðu sagðist hafa verið bitinn í öðrum landshlutum en þeir búa í. Um þriðjungur sagðist hafa verið bitinn á sínum heimaslóð