Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu.