Rauðgræna blokkin er sigurvegari þingkosningana í Svíþjóð sem fram fóru um helgina. Þetta fullyrti sænska ríkisútvarpið síðdegis þegar 99% atkvæða höfðu verið talin. Búist var við að ekki yrði hægt að fullyrða um sigurvegara í kosningunum fyrr en á morgun. Rauðgræna blokkin og flokkar innan hennar hafa verið í stjórnarandstöðu undanfarið kjörtímabil. Það er því ljóst að ríkisstjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra hefur misst umboð sitt og líklegast er að Magdalena Andersson, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, taki við embættinu að loknum stjórnarmyndunarviðræðum. Þær viðræður gætu tekið langan tíma, þar sem afar mjótt var á munum. Eins og sakir standa er því spáð að rauðgræna blokkinn, sem samanstendur af vinstri- og miðjuflokkum, fái 175 þingsæti en blágræna blokkin, sem er frá miðj