Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu og aðgerðir sendla heimsendingarfyrirtækisins Wolt. Sambandið hvetur þá til að leita til ASÍ og aðildarfélaga þess til að tryggja þeim stöðu og kjör samkvæmt lögum og kjarasamningum.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ASÍ.Um 60 sendlar sem starfa fyrir Wolt á Íslandi lögðu niður störf í dag og kröfðust útskýringa á því að þeir hefðu lækkað í launum undanfarna mánuði.Sendlarnir eru í svokallaðri gerviverktöku. Þeir eru ekki starfsmenn Wolt og eru ekki í stéttarfélagi. Sendlarnir búa því ekki við veikindarétt og uppsagnarfrest, til dæmis.Wolt greiðir sendlum aðeins fyrir hverja sendingu sem þeir fara með. Sjálfir greiða þeir eldsneyti, kílómetragjald, skatta og allt annað sem fellur til.Miðstjórn ASÍ skorar á fyrirtæki sem