Eftir að ljóst var að áform um að byggja nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði færu út um þúfur, þar sem bærinn gat ekki staðið við skuldbindingar sínar um að útvega lóð, hafa bæði Mosfellsbær og Reykjavík lýst yfir áhuga á skólanum - og nú bætist Reykjanesbær í hóp áhugasamra. STÓRT IÐNAÐARMANNASAMFÉLAG „Tækniskólinn myndi eiga mjög vel heima hérna með allri þeirri gagnaversuppbyggingu, landeldi, uppbyggingunni í kringum flugvöllinn og niður í Helguvík,“ segir Ingvar Eyfjörð framkvæmdastjóri Aðaltorgs. „Hér er mjög stórt iðnaðarmannasamfélag og mjög mörg verkefni sem bíða í framtíðinni.Svæðið sem um ræðir heitir Aðaltorg, er skammt frá Keflavíkurflugvelli og liggur við Reykjanesbraut. Þar eru fyrir hótel og ýmis þjónusta og Ingvar segir að auk skólabyggingar rúmi svæðið vel fjölda námsmannaíb