Eitt stærsta gagnaver landsins gæti risið á Bakka, norðan Húsavíkur. Áform bresks fyrirtækis um 120 milljarða byggingu voru kynnt íbúum í Norðurþingi í gær.Íbúar sem sátu kynningarfundinn í gær virtust taka vel í hugmyndina - því eftir að PCC slökkti á vinnslunni á Bakka, vel yfir hundrað misstu vinnuna og svipaður fjöldi flutti úr bænum - vilja þeir ólmir sjá uppbyggingu og störfin sem henni fylgja.Og uppbyggingin sem nú er á teikniborðinu, við hliðina á húsi Landsnets á Bakka, er ekkert smáræði.Eitt stærsta gagnaver landsins gæti risið norðan Húsavíkur á næstu mánuðum. Það yrði þá þriðja gagnaverið sem rís á Norðurlandi á örfáum árum.„Heildarsvæðið 8 hektarar en byggingin sjálf, gagnaverið kannski um 2 hektarar og þetta eru um hundrað megavött, sem sagt af gagnanýtingu“, segir Þóra Helga