Baldvina Ýr verður forstjóri SÁÁ

Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, hefur verið ráðin í starf forstjóra SÁÁ og hefur bráðlega störf.Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÁÁ.„Við erum virkilega ánægð með að fá Baldvinu Ýr til starfa hjá SÁÁ á þessum tímamótum. Hún býr yfir reynslu af stjórnun, sterkum faglegum bakgrunni og þekkingu á flóknum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Ráðning hennar er mikilvægt skref í því að skapa stöðugleika, byggja upp traust og styrkja samstarfið innan samtakanna,“ er haft eftir formanni SÁÁ.Talsverður styr hefur staðið um SÁÁ að undanförnu og lykilstjórnendur, meðal annars fyrrverandi forstjóri, horfið frá.Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagst
Baldvina Ýr verður forstjóri SÁÁ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd