Likud-flokkurinn vill ekki leyfa Ísraelsmönnum erlendis að kjósa

Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, fer þess á leit við yfirkjörstjórn landsins að hafna tillögum um að leyfa ísraelskum ríkisborgurum erlendis að kjósa í þingkosningum sem fyrirhugaðar eru seint í næsta mánuði.Lög kveða á um í dag að þeir 600 þúsund ísraelsku ríkisborgarar sem búa erlendis megi ekki kjósa til þings, nema erindrekar ríkisins. Stjórnarandstæðingar hafa hvatt Ísraelsmenn erlendis til að ferðast heim og greiða atkvæði utankjörfundar fyrir kosningarnar 27. október. Þeir telja stuðning við flokk Netanjahús minni meðal þessa hóps. Brugðið hefur verið á það ráð að bjóða flugfargjöld með afslætti eða aðstoð við akstur frá flugvöllum í Ísrael og á kjörstað. Lögmaður Likud sendi formanni yfirkjörstjórnar bréf í dag þar sem þess er krafist að tekið verði fyri
Likud-flokkurinn vill ekki leyfa Ísraelsmönnum erlendis að kjósa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd