Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða. Þingmaður Norðausturkjördæmis telur tillögurnar ekki kjördæminu í hag.Samkvæmt tillögunum, sem voru kynntar í morgun, mun þingmönnum Norðausturkjördæmis fækka um þrjá og þingmönnum Norðvesturkjördæmis um einn nái þær fram að ganga.Á móti fjölgar þingmönnum í Kraganum, nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur, um fjóra. Þingmannafjöldi Reykvíkinga og Suðurkjördæmis yrði óbreyttur.Starfshópnum var falið að koma með tillögur að því hvernig mætti jafna vægi atkvæða á landinu, án þess að þurfa að ráðast í stjórnarskrárbreytingar. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, leiddi starfshópinn. MISVÆGI ATKVÆÐA MEIRA Á ÍSLANDI Ólafur segir misvægi eftir atkvæðum meira á Íslandi en í flestum nágran