Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt

Hópur bandarískra fjárfesta með tengsl við Donald Trump Bandaríkjaforseta er sagður hafa keypt hús fyrir grænlenska kaupsýslumanninn og fyrrverandi stjórnmálamanninn Jørgen Wæver Johansen. Þetta kemur fram í danska miðlinum BT þar sem segir jafnframt að Johansen sé eiginmaður Vivian Motzfeldt, fyrrverandi utanríkisráðherra Grænlands. Hennar stjórnmálaferils verður án efa einna helst minnst fyrir fræga ferð til Washington D.C., þar sem hún og Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, funduðu með J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, og Marco Rubio utanríkisráðherra vegna áhuga Trumps á Grænlandi. Kaupverðið var 5,4 danskra króna, andvirði 100 milljóna íslenskra króna, og er húsið staðsett miðsvæðis í höfuðstaðnum Nuuk. Fyrr á þessu ári kom í ljós að félagið Greenland Development P
Segja fjárfesta með tengsl við Trump hafa keypt hús fyrir eiginmann Motzfeldt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd