80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til

80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Í skilmálum flestra samfélagsmiðla er kveðið á um að þeir séu bannaðir börnum yngri en 13 ára. Hlutfallslega eru fleiri strákar sem nota samfélagsmiðla. Það gera 88,5% þeirra samanborið við 76,7% stelpna.Þetta kemur fram í nýjum lýðheilsuvísum sem voru kynntir í ellefta sinn á Egilsstöðum í dag. Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem ætlað er að gefa vísbendingar um heilsu og líðan landsmanna á hverjum tíma. Embætti landlæknis birtir lýðheilsuvísa árlega en þeim er ætlað að auðvelda stjórnvöldum og öðrum að greina stöðu lýðheilsu, finna styrkleika og áskoranir og skilja þarfir íbúa til að geta ýtt undir bætta heilsu og líðan fólks.Í sumar voru áform barna- og menntamálaráðuneytisins um lagasetningu sem bannar s
80% barna í 4.-5. bekk á samfélagsmiðlum þrátt fyrir að hafa ekki aldur til

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd