Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í gær til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti. Hann var ákærður fyrir að taka ítrekað við og geyma peninga sem voru til komnir vegna sölu og dreifingar fíkniefna auk annarra brota. Hann ýmist tók við peningunum í reiðufé eða fékk þá millifærða inn á bankareikning sinn. Peningana afhenti hann svo öðru fólki.Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi frá 4. febrúar og dregst það frá refsingu hans.Héraðsdómur Reykjaness.Ruv.is / Anton Brink
Dæmdur fyrir peningaþvætti vegna fíkniefnabrota

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd