Franska rannsóknaskipið Pourquoi Pas? var statt fyrir utan Reykjanes þann 15. september 1936 þegar veðrið fór að versna. Skipið hélt inn á Faxaflóa til skjóls en veðrið herti og seint um kvöld var komið ofsarok.Í stað þess að leita aftur til Reykjavíkur hraktist skipið inn í skerjagarðinn við Mýrar. Skipið strandaði við skerið Hnokka nálægt bænum Straumfirði. Tíu manns lögðu upp frá Akranesi en þegar MB Ægir kom á slysstað sást ekkert af skipinu nema masturstoppur. 21 lík hafði þá þegar rekið á land, meðal annars hinn dáði franski landkönnuður, Jean Baptiste Charcot. HUGRAKKT GÓÐMENNI Franska sendiráðið minnist slyssins á strandstað í dag. Anna Margrét Björnsson, upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins á Íslandi segir að enn þann dag í dag sé Charcot dáður í Frakklandi fyrir störf sín í