Aðalmeðferð í Dettifossmálinu svokallaða hófst í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls eru fjórir ákærðir og snýst málið um smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir eru taldir hafa skipulagt smyglið og hinir tveir ákærðu, skipverjar sem voru starfsmenn Eimskips þegar smyglið kom upp, eru ákærðir fyrir innflutning.Þeir játuðu báðir sök að hluta við þingfestingu í júní. Skipuleggjendurnir tveir, Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepa, neituðu að mestu við þingfestingu málsins.Skipverjarnir gáfu skýrslu fyrir dómi í morgun en þeir játuðu báðir að hluta við þingfestingu málsins. Þeir eru Íslendingar rétt yfir tvítugu. Hér verða þeir kallaðir A og B. „SKÍTHRÆDDUR OG STRESSAÐUR“ FYRIR FUNDINN A var fyrri til að gefa skýrslu fyrir dómi. Han