Blóðsöfnun Ísteka úr fylfullum blóðmerum fellur undir tilskipun Evrópusambandsins um tilraunir eða vísindalegan tilgang, segir EFTA-dómstóllinn í ráðgefandi áliti. Héraðsdómur Suðurlands bað um slíkt álit vegna dómsmáls Ísteka gegn Matvælastofnun.Eftirlitsstofnun EFTA sendi íslenskum stjórnvöldum áminningarbréf 2023 um að blóðtaka teldist tilraun í skilningi tilskipunarinnar. Íslensk stjórnvöld tilkynntu þá að þau myndu breyta regluverki um blóðmerahald og blóðsöfnun úr fylfullum hryssum.Matvælastofnun synjaði síðar beiðni Ísteka um að framlengja leyfi til blóðtöku um fjögur ár. Stofnunin sagði að starfsemin teldist tilraun í skilningi reglugerðarinnar. Þetta sættu forsvarsmenn Ísteka sig ekki við og kröfðust þess fyrir dómi að ákvörðun Matvælastofnunar yrði ógilt.Ísteka sagði að blóðsöfnu