Enn liggur ekki fyrir hvort til standi að rétta aftur yfir Lindsay Clancy, sem banaði þremur ungum börnum sínum árið 2023. Sjö vikna réttarhöldum gegn henni lauk nýverið án niðurstöðu þar sem kviðdómendur komust ekki að einróma niðurstöðu. Ný réttarhöld gætu reynst erfið vegna þeirrar athygli sem málið og kviðdómendur hafa fengið.