„Það ætla ég bara rétt að vona, að ríkið komi ekki enn einu sinni hér og geri eitthvað án samráðs við sveitarfélögin,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Dómsmálaráðuneytið vill koma upp brottvísunarstöð á Ásbrú.Vilhjálmur segir endanlega staðsetningu ekki liggja fyrir en dómsmálaráðuneytið hafi valið þann kost sem því þyki fýsilegastur, Klettatröð 8 á Ásbrú. Bærinn treysti á gott samstarf og samvinnu í framhaldinu.Vilhjálmur vill ekki segja til um hvort bæjarstjórn muni leggjast alfarið gegn því að starfsemin verði í sveitarfélaginu. Margt þurfi að liggja skýrar fyrir áður en hægt sé að taka afstöðu til þess. Staðsetning og útfærsla skipti bæjaryfirvöld miklu máli.Samkvæmt frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í júní á brottfararstöðin að taka til starfa 1. desember.