Einstaklingar í brottvísunarstöð verða vistaðir á Ásbrú

Frumvarp dómsmálaráðherra um brottvísunarstöð var samþykkt í júní. Frumvarpið var umdeilt utan þings og á lokametrunum voru gerðar umtalsverðar breytingar á því. Til að mynda að barnafjölskyldur skyldu vistaðar í sér úrræði fjarri einstaklingum. Samkvæmt frumvarpinu á brottvísunarstöðin að taka til starfa 1. desember. Framkvæmdasýsla ríkiseigna óskaði eftir húsnæði á Suðurnejsum og bárust fjórtán tilboð frá þrettán aðilum. Þrír kostir komu til greina og var ákveðið að ganga til viðræðna við Fjöl ehf. um húsnæði við Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjenesbæ. Fyrsti samningafundur verður á morgun. Í svörum frá dómsmálaráðuneytinu segir að leit standi enn yfir að húsnæði undir barna- og fjölskylduúrræði.
Einstaklingar í brottvísunarstöð verða vistaðir á Ásbrú

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd