Annar skipverjanna sem ákærðir eru í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa upplifað „panikk“ þegar hann tók við amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi sem fluttur var til Íslands. Hann hafi ekki viljað taka þátt í innflutningnum til að byrja með en gefið eftir að lokum eftir þrýsting.