Sláturhúsum á landsbyggðinni hefur fækkað undanfarin ár. Eftir standa fimm stór sláturhús sem sjá um langstærstan hluta sauðfjárslátrunar. Þau eru á Húsavík, Sauðárkróki, Hvammstanga, Selfossi og Kópaskeri.Einar Kári Magnússon er aðstoðarsláturhússtjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Hann segir að stóru sláturhúsin slátri meira en 99% af öllu sauðfé á landinu. Skepnurnar séu oft fluttar um langa leið enda ekkert stórt sláturhús á Suður- og Austurlandi frá Selfossi að Kópaskeri og Húsavík.Sigurður Hallgrímur Jónsson, bóndi og bílstjóri, hefur séð um akstur á Austurlandi í fjöldamörg ár og flytur þúsundir lamba í hverri sláturtíð.„Jú, jú, þetta er allt upp í þúsund kílómetrar ferðin. Þá meina ég fram og til baka.“ SKIPULAG FLUTNINGA SKIPTIR ÖLLU MÁLI Um 380.000 fjár verður slátrað á landinu