Undir lok ágúst voru 40 ár frá því bandaríski tónlistarmaðurinn Paul Simon opnaði augu og eyru Vesturlandabúa fyrir afrískri tónlist en líka ógn og ömurð aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku.Graceland-platan á sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um, að tónlist Afríku ætti erindi við heimsbyggðina alla og hún hljómar enn á götum suðurafrískra borga – tákn um frelsi og gleði og allt það sem býr í álfunni og íbúum hennar.Rúmir fjórir áratugir eru síðan Graceland kom út. Tveir Suður-Afríkumenn, einn sem lifði apartheid-tímann og önnur sem fæddist eftir að honum lauk, segja að platan eigi sér enn sérstakan stað í hjörtum íbúa því hún sýndi hvað Suður-Afríka er fær um.Anelia Heese ólst upp í Suður-Afríku. Hún er fædd 1991, árið sem aðskilnaðarstefnan var