Ný tegund upptökutækja sem njóta aðstoðar gervigreindar hafa mikið verið auglýst undanfarið. Sem dæmi um slíkt snjalltæki er Pocket sem auglýst er sem góð leið til að henda reiður á daglegum samtölum. Helsta virkni tækisins er að það tekur upp öll samtöl sem eiga sér stað í allt að 15 metra radíus. Þá er einnig hægt að setja það aftan á snjallsíma og taka upp símtöl.Tæki sem taka upp samtöl hafa vissulega verið til í áratugi en breytingin sem fylgir Pocket er sú að gervigreind sér um að fara yfir samtölin í tækinu, umritar þau í textaform og býr til punkta yfir það sem sagt var. Einnig er hægt að sjá hver sagði hvað þar sem fullyrt er að gervigreindin geti aðgreint raddir og hjálpað til við greiningu á samtölunum.Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar telur slík tæki vekja upp spurning