Héraðssaksóknari hefur ákært karl og konu fyrir að smygla tæplega 70 kílóum af fíkniefnum til landsins. Smyglið uppgötvaðist í júní þegar 56 kíló af amfetamíni, átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, tæpt kíló af MDMA- og ketamínblöndu og tæpt kíló af metamfetamíni fundust í húsbíl. Efnunum hafði verið komið fyrir á þremur stöðum í húsbílnum. Fólkið var á honum þegar það kom með Norrænu til Íslands snemma sumars. Eftir komuna til landsins hélt maðurinn einn áfram á bílnum og var handtekinn á tjaldstæðinu Hömrum við Akureyri næsta dag. Konan flaug hins vegar frá Egilsstöðum sama dag og hún kom til landsins á leið sinni heim til Belgíu.Karlmaðurinn er 53 ára en konan 29 ára.Í ákæru segir að karlmaðurinn hafi smyglað efnunum og fengið konuna með sér til að ljá ferðinni trúverðugra yfirb