Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi, um 50 kílómetra suðvestur af Eldey.Í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands sem barst á sjöunda tímanum í morgun kemur fram að tæplega 50 skjálftar hafi mælst með hléum frá því að hrinan hófst í gærkvöldi klukkan 21:55.