Talsverð rigning í dag

Nú er um að gera að klæða sig vel því í dag rignir mikið um tíma og blæs hressilega. Vindurinn getur farið nálægt stormstyrk suðvestantil á landinu. Mest rignir sunnan- og vestanlands.Mjög dregur úr vindi þegar líður á daginn.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðaustan 10-18 metrar á sekúndu og rigning, hvassast suðvestantil. Sums staðar talsverð rigning um tíma, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í sunnan og suðvestan 3-8 og dregur úr vætu á sunnan- og vestanverðu landinu er líður á daginn.Norðvestan 8-13 metrar á sekúndu við suður- og vesturströndina en annars hægari vindur. Rigning með köflum, en skúrir suðvestantil. Hiti 5 til 13 stig, svalast norðaustantil.
Talsverð rigning í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd