Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í tíu í gærkvöld. Hún er um 50 kílómetra suðvestur af Edley.Stærstu skjálftar hrinunnar voru 3,2 og 3,1 að stærð. Alls hafa tæplega 50 skjálftar mælst frá því hrinan hófst. Hlé hafa orðið inn á milli í hrinunni.Síðasta hrina á þessum slóðum varð 25. júlí. Jarðskjálftahrinur eru algengar á flekaskilum sem hryggurinn liggur á.Upptök stærsta jarðskjálftans.RÚV