Hútar segjast hafa grandað sádiarabískri herþotu

Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa skotið niður F15 orrustuþotu sádiarabíska flughersins í morgun með heimagerðri eldflaug.F-15 orrustuþota sömu gerðar og Hútar segjast hafa grandað.EPA / ABIR SULTANÍ yfirlýsingu talsmanns Húta á samfélagsmiðlum var þotunni grandað yfir Marib-héraði þar sem hún var við hernaðaraðgerðir. Hútar saka Sáda um að hafa gert hundruð árása á Jemen í nótt eftir að fjölþjóðaherinn undir þeirra stjórn skaut niður dróna sem sagður var á leið til Mekka, helgustu borgar múslíma, í nótt. Hútar sögðust ekki bera ábyrgð á för drónans.
Hútar segjast hafa grandað sádiarabískri herþotu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd