Tveimur flugvöllum í Póllandi lokað vegna árása Rússa á Úkraínu

Pólskar F-35 og F-16 orrustuþotur á lofti.EPA / Leszek SzymanskiTveimur flugvöllum í austanverðu Póllandi, í Lublin og Rzeszów, hefur verið lokað vegna eldflaugaárása Rússlandshers á Úkraínu. Þeir eru báðir skammt frá landamærum ríkjanna. Í tilkynningu pólskra flugmálayfirvalda segir að flugherinn sé í viðbragðsstöðu og búi sig undir fyrirbyggjandi aðgerðir.
Tveimur flugvöllum í Póllandi lokað vegna árása Rússa á Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd