Óskað var eftir aðstoð lögreglu eftir að maður réðst á annan í bifreið. Árásarmaðurinn hafði slökkvitæki meðferðis og braut hann rúður í bifreiðinni með slökkvitækinu og kastaði því síðan í ökumanninn. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.