Forstjóri drónaframleiðslufyrirtækis í felum af ótta við tilræði af hálfu Rússa

Stefan Thumann, forstjóri drónaframleiðslufyrirtækisins Donaustahl, er í felum og hefur þurft að skipta um dvalarstað á nokkurra vikna fresti og fer hvergi án lífvarða af ótta við tilræði af hálfu rússneskra stjórnvalda. Hann segir í samtali við AFP að þýsk yfirvöld hafi í desember varað hann við mögulegri ógn af hálfu Rússa og að annaðhvort ljúki sögunni með falli Rússlandsstjórnar eða dauða hans sjálfs. Thumann telur fleiri en hann í hættu, í raun öll lönd Evrópusambandsins og hvert einasta vopnafyrirtæki. Thumann er einarður stuðningsmaður Úkraínu í innrásarstríðinu og segir lífið hafa umturnast eftir að hann neyddist til fara huldu höfði. Hann sé meira og minna einangraður frá umheiminum en gangi þó vel að stjórna fyrirtækinu hvar sem hann er staddur. Hins vegar séu samskiptin við fjöl
Forstjóri drónaframleiðslufyrirtækis í felum af ótta við tilræði af hálfu Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd