SpaceX hyggst senda Starship á sporbaug í næstu viku

Bandaríska geimferðafyrirtækið SpaceX hyggst skjóta Starship-eldflaug á loft 22. september ef veður og yfirvöld leyfa.Starship-flaug SpaceX þýtur til himins frá Starbase 24. júlí 2026.EPA / MICHAEL GONZALEZÍ tilkynningu á vef fyrirtækisins segir að ætlunin sé í þessari fjórtándu ferð Starship að hringsóla jörðina sex sinnum í ferð sem ætlað er að standi tíu klukkustundir. Það yrði í fyrsta skipti sem Starship færi á sporbaug og einnig í fyrsta sinn sem farið kemur fyrir Starlink-gervihnöttum, 26 talsins.Flauginni verður skotið frá geimferðastöðinni Starbase Texas í 75 mínútna glugga sem opnast kortér yfir sjö að morgni 22. september að staðartíma. Starship er ætlað að lenda í Kyrrahafinu vestan við Chile að ferðinni lokinni.
SpaceX hyggst senda Starship á sporbaug í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd