Bandaríkjaþing þarf að samþykkja umfangsmikla vopnasendingu til Ísraelsríkis sem bandarískir miðlar segja 2,8 milljarða dala virði. Viðskiptin séu einhver þau umfangsmestu á undanförnum árum og fjármögnuð með skattfé.The Washington Post segir Bandaríkin ætla að afhenda Ísraelsstjórn fjöldann allan, tugþúsundir af skæðustu sprengjum og sprengjuoddum sem finnast í vopnabúrum Vesturlanda.The New York Times hefur eftir ónafngreindum embættismanni að Trump-stjórnin hafi þegar samþykkt viðskiptin.Háttsettur embættismaður vildi í samtali við AFP ekki tjá sig sérstaklega um viðskiptin við Ísrael en sagði alla vopnasölu til útlanda fara viðeigandi leið innan stjórnkerfisins. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði starfsreglur ekki leyfa að greint verði frá fyrirhugaðri sölu fyrr en formleg tilkynni