Thomas Massie, þingmaður Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, kom samflokksmönnum sínum í opna skjöldu þegar hann krafðist þess að varnar- eða stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth yrði kærður til embættismissis og rannsókn málsins færð öldungadeildinni til úrskurðar.Massie, sem lengi hefur eldað grátt silfur við samflokksmenn sína og Donald Trump forseta, sagði í nokkurra klukkustunda langri ræðu Hegseth hafa misbeitt valdi sínu þegar hann fyrirskipaði hernum að hefja árásir á Íran í febrúarlok án samþykkis þingsins og halda þeim áfram, auk fleiri brota.Þar á meðal nefndi Massie brottnám Nicolasar Maduro Venesúelaforseta í janúar. Hegseth haldi áfram að ógna ákvæðum stjórnarskrárinnar verði hann áfram við völd. Massie lagði tillöguna fram nokkrum klukkustundum áður en fulltrú