Hafnarfjarðarbær hefur greitt flokksbróður fyrrverandi bæjarstjóra að minnsta kosti 19 milljónir króna fyrir vinnu vegna misheppnaðra lóðarkaupa bæjarins undir Tækniskólann. Honum var falið að semja við lóðareigendur, sem virðist fljótlega hafa orðið ljóst að yrðu miklu dýrari og erfiðari en bærinn reiknaði með og var tilbúinn til að greiða. Fyrir ári hélt bærinn því fram að samningar um lóðirnar væru ýmist frágengnir eða á lokametrunum.Þann 12. febrúar síðastliðinn birtistfrétt á vef stjórnarráðsins, og með henni mynd af glaðhlakkalegu þríeyki. Inga Sæland ráðherra menntamála, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og skólameistari Tækniskólans, stóðu við púlt á Menntadegi atvinnulífsins. Tekin hafði verið ákvörðun um að flýta byggingu Tækniskóla Íslands og það tilkynnt og undirritað við púl