Segir unnið hafa verið að því að bola fyrrverandi forstjóra úr starfi

Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að brottför Ragnheiðar Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra samtakanna, hafi verið undirbúin. Hún segir einnig að stjórn SÁÁ hafi haft óeðlileg afskipti af faglegu starfi heilbrigðisþjónustunnar.„Það má segja að þetta hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir okkur flest sem vorum að vinna inni í heilbrigðisþjónustunni hjá SÁÁ,“ sagði Valgerður í Kastljósi í kvöld.Ragnheiður Hulda lét af störfum 5. ágúst eftir fund með formanni og varaformanni SÁÁ. Í framhaldinu hættu hún og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík. Heimildir fréttastofu herma að auk þess séu fleiri starfsmenn komnir í veikindaleyfi.Valgerður segir að stjórnendur heilbrigðisþjónustunnar hafi brugðist strax við þegar þe
Segir unnið hafa verið að því að bola fyrrverandi forstjóra úr starfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd