Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, segir það ekki hafa komið sér sérlega á óvart að öryggisbrestur hafi orðið hjá gervigreindarfyrirtækinu Open AI. Hann segir að árásin hafi þó vakið fólk til umhugsunar um gervigreind og tölvuöryggi og hægt sé að draga ýmsan lærdóm af henni.„Ég meina, hér erum við að tala um þetta.“Tölvuárás sem gervigreind á vegum OpenAI gerði af sjálfsdáðum í sumar hefur komið óþyrmilega við marga. Forsvarsmenn helstu tæknifyrirtækja heims hafa kallað eftir því að reglur verði settar til að hægja á þróun gervigreindar. Hvað gerðist í árásinni? Í sumar prófaði OpenAI gervigreind fyrirtækisins í netöryggi. Til að halda prófunum öruggum voru drekar, erindrekar gervigreindar fyrirtækja sem leysa verkefni upp á eigin spýtur, látnir vinna í lokuðum