Með nýrri aðferð tekur einungis einn og hálfan mánuð að byggja hjúkrunarheimili í Hafnarfirði. Verktaki segir þetta fyrsta heimilið sem er byggt á þennan hátt.Það má kannski helst líkja þessu við að raða saman risastórum legókubbum. Hver kubbur, eða eining, er forsmíðaður úr stáli og vegur 30 tonn og inniheldur tvær litlar íbúðir og gang.Fyrstu einingarnar komu sjóleiðis frá Póllandi til Hafnarfjarðar. Í þeim er um helmingur hjúkrunarrýmanna og restin kemur á næstu vikum.Frá Hafnarfjarðarhöfn voru einingarnar fluttar á byggingarstað í Hamranesi. Þar var þeim komið fyrir á grunninum.Íslenskar fasteignir sjá um framkvæmdir. Húsið verður reist að fullu í lok október og síðan tekur ýmis frágangur við og bygging sameiginlegra rýma.„Þetta verður byggt mjög hratt og mér skilst að upp úr áramótum,