„Þetta er gríðarlega stór dagur í íslenskri orkusögu, við erum að opna nýjan kafla,“ segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um opnun fyrsta vindorkuversins hér á landi. Verið var opnað í Vaðöldu við hátíðlega athöfn í dag.Fjármálaráðherra segir Ísland í góðu tækifæri til að nýta alla kosti vindorkunnar. „Þetta opnar algjörlega ný tækifæri fyrir orkuvinnslu inn í framtíðina.“ Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun segir vindorkuverið kosta yfir 20 milljarða íslenskra króna. SKILA RAFMAGNI AF VINDMYLLUNUM INN Á FLUTNINGSNETIÐ Í FYRSTA SKIPTI Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunar, segir daginn merkilegan þrátt fyrir að framkvæmdum við Vaðölduver sé ekki lokið.„Þrátt fyrir að framkvæmdinni sé ekki að fullu lokið þá er þetta virkilega merkilegur dagur fyrir