Úkraínskir karlmenn fá framvegis ekki dvalarleyfi hér á landi nema þeir hafi lokið herskyldu samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á næstunni. Málið var afgreitt úr ríkisstjórn í síðustu viku.Breytingin er í samræmi við beiðni úkraínskra stjórnvalda sem hafa átt í erfiðleikum með að manna herdeildir. Milljónir Úkraínumanna hafa leitað skjóls í öðrum löndum eftir að innrásarstríð Rússa hófst og þar af um sjö þúsund á Íslandi.Ríki Evrópusambandsins og Noregur hafa þegar ákveðið að verða við þessari beiðni og breyta sinni löggjöf. Þetta þýðir að úkraínskir karlmenn þurfa framvegis að sýna fram á að þeir hafi lokið herskyldu til að fá skjól í þessum löndum.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að íslensk löggjöf sé í samræmi við reglur annarra